Aðalfundur félagsins fer með æðsta vald í málefnum þess og skal hann haldinn á haustin annað hvert ár, en aukafundi má halda þegar stjórnin telur ástæðu til eða ef 1/4 félagsmanna krefjast þess, enda geri þeir rökstudda grein fyrir tilefni fundarins. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi. Stjórnin ákveður hvar fundir eru haldnir og tilkynnir það til félagsmanna á viðurkenndan máta með minnst 10 daga fyrirvara með sannanlegum hætti, til dæmis með auglýsingu á heimasíðu félagsins og/eða í tölvupósti til meðlima félagsins. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála. Formaður boðar til stjórnarfunda. Afl atkvæða ræður úrslitum mála, nema annars sé krafist, samanber 12. og 13. grein.